don´t be a bad boy!

ENGINN

26.02.2007 21:02:17 / hefnibandalagid

fólk sem dreifir kjaftasögum um aðra er pirrandi er það ekki?

Hvað fær fólk til þess að búa til sögur um annað fólk og dreifa því án samviskubits og alls gríns? í alvöru.. maður heyrir alveg fáránlegustu hluti um sig sem maður getur stundum rakið alla beint til einnar manneskju.. er það ekki bara lélegt sjálfstraust og sjálfsálit sem veldur því að fólki finnst það þurfa að búa til einhverja hluti um aðra og dreifa þeim?

ef ég hugsa um það fólk sem ég veit að hefur verið að búa til mjög heimskulega og stundum alveg frekar fyndna kjánalega hluti um mig þá virðist það fólk kannski í fyrstu vera mjög sjálfsöruggt og hresst og skemmtilegt og fyndið en í rauninni er það bara alltaf með einhverja fals grímu sem það setur upp til að aðrir fatti ekki hvernig þeirra persóna er í raun og svo finnst þeim best að búa til sögur sem láta aðra líta illa út bara til að upphefja sjálfa sig..

eru þið sammála?

hættiði að búa til sögur og kjafta þeim án alls gríns.. það er ekkert sniðugt.. og ég eeefast um að ykkur líði betur..


» 16 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 13:41:41 / hefnibandalagid

slúður

smá meira slúður.. við ætlum að bæta meira inní í dag þegar við erum búnar að frétta eitthvað meira.. annars bara allir að kommenta um eitthvað skemmtilegt og ljótt sem gerðist um helgina..:)


» 13 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 10:11:36 / hefnibandalagid

SLÚÐUR?????

NÝTT SLÚÐUR ER KOMIÐ.. VIÐ VILJUM BIÐJA ALLA AÐ KOMMENTA UM ÞAÐ.. GÓÐAR HEIMILDIR ERU FYRIR ÖLLU ÞESSU SLÚÐRI!!!


» 20 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 19:09:52 / hefnibandalagid

Laxabörn..

Good evening ladies and gentlemans!! :)
Þessi síða fer heldur betur vel af stað þykir mér, hún á klárlega eftir að verða popjúlar í bloggheiminum...ekki spurning..

Annars er sitthvað að frétta af okkur stöllum, Linda er flutt aftur heim frá Reykjavík, og byrjar í skólanum á morgun, sem er gaman :) við erum allar glaðar að hún hafi komið aftur heim..
Svo var Sigrún að kaupa sér bíl, Toyota Yaris, hvítan, geðveikt flottur !!  með agalega smart topplúgu, sem þarf að skrúfa!! haha, til hamingju með nýja ferðamátann Sigrún..

Um helgina hittust stelpurnar heima hjá Elísubet, fóru í pottinn og eitthvað skemmtilegt, en ég þurfti að vera heima að passa krakkana meðan foreldrar mínir slettu ærlega úr klaufunum á þorrablóti kvennfélagsins, gaman að því, svo komu allir heim með sjálflýsandi spennu!! HAHA! hversu fyndið?? og líka Stefán Geir.. glæsilegur..

Næstu helgi ætlar Elísabet að bjóða okkur í mat :) það verður eflaust gaman, Beta rokk er alltaf með eitthvað skemmtilegt, svo hugmyndarík eftir þessa mánuði sína í borginni :) svo eru Helgi og Ella non stop í partýheitum og fleiri boðum, þannig hún hefur alltaf höllina útaf fyrir sig.. :) sem er betra.. Myndavélin verður sennilega með í för, þannig við hljótum að fara að geta skutlað inn nokkrum myndum hér við tækifæri... nú er bara að bíða og vona...

Annars er lítið annað í fréttum..

Þannig ég held að ég kveðji bara í bili,
Kommentið eitthvað skemmtilegt..

Virðingarfyllst
Hanna GEIR 8) (nýja viðurnefnið mitt.. töff?? )


» 17 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 20:13:40 / hefnibandalagid

stelpur druslur en strákar ekki?

Jæja..kominn tími á blogg.. ég var að horfa á Beverly Hills um daginn eins og gerist stundum og ég man ekki hver en allavega einhver sagði við Brandon, hvað finnst þér um allt sifjaspellið í þessum vinahóp, þegar allir eru búnað vera með öllum? finnst þér það ekkert óþægilegt? og hann sagði bara neii ég reyni að hugsa ekkert um það..

ég er að pæla í þessu eins og til dæmis hérna á Húsavík, hér eru (næstum)allir búnað vera með(næstum) öllum og engum finnst það neitt áhugavert.. eða er það? til dæmis ég og vinkonur mínar erum svona semí stór vinahópur.. ekkert ofvaxinn en samt frekar stór.. og við erum eiginlega allar búnað kyssa nákvæmlega sömu gaurana, sofa hjá þeim og sumar búnað vera í sambandi með sömu gaurunum. alltaf svona sirka 3 sem eru búnað vera með einhverjum einum náunga.. sem sagt einn gaur með 3 bestu vinkonum (eða okei tvem til þrem til fjórum).. en það er aldrei talað um það samt.. er gaurinn ekkert ógeðslegur ef hann er búinn að vera með (liggur við) heilum árgang!? ef að ég til dæmis væri búin að okei gera eitthvað með 3-4 strákum úr sama vinahóp þá væri ég þokkalega pottþétt kölluð ógeðsleg drusla.. hvaaaað finnst ykkur? af hverju er þetta svona.. strákar mega gera það sem þeir vilja, sofa hjá öllum og alveg sama hvað þeir gera, það er bara eðlilegt.. en aftur á móti stelpur sem sofa hjá 2 strákum eru druslur??

allir að segja sína skoðun

Elisabet


» 19 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 20:45:23 / hefnibandalagid

strákar, don´t brake a heart and be naughty.. whats out, the clows are out!!

Heil og sæl!!
Þetta mun vera fyrsta blogg Hefnibandalagsins, eins og við kjósum að kalla okkur, en það felst í því að allir strákar sem brjóta hjörtu okkar, þeir eiga eftir að sjá eftir þvi, við getum orðað það þannig8)
Þetta er mest í gamni gert, og við erum ekkert eins sorglegar og það lýtur kannski út fyrir, bara stelpur með húmor :)

Allavega, þá er þessi blessaða síða enn í fæðingu, svo við biðjum ykkur að vera róleg, en við ætlum að vera duglegar að taka myndir og bæta einhverju skemmtilegu hérna inn :)



» 24 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill
Við að blogga*